Héðan og þaðan
FRUMSÝNING
Föstudag kl. 20
Sýnd föstudag kl. 20
1.100 kr. inn
Algjör Sveppi og dulafulla hótelherbergið
Sunnudag kl. 16

Algjör Sveppi og dulafulla hótelherbergið
1.100 kr. inn.

Um Vesturbyggð

« 1 af 2 »

Vesturbyggð
Aðalstræti 63
450 Patreksfjörður

 

Númer sveitarfélags 4607

Kennitala 510694-2369
Sími 450 2300
Fax 456 1142
Netfang vesturbyggd@vesturbyggd.is

Veffang www.vesturbyggd.is

 

Vesturbyggð er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum. Til Vesturbyggðar teljast byggðakjarnarnir Birkimelur á Barðaströnd, Bíldudalur og Patreksfjörður og sveitirnar Barðaströnd, Breiðavík, Hænuvík, Ketildalir, Látrar, Rauðisandur og Suðurfirðir.

Fyrrum voru sex hreppar á suðursvæði Vestfjarða: Barðastrandahreppur, Ketildalahreppur, Patrekshreppur, Rauðasandshreppur, Suðurfjarðahreppur og Tálknafjarðarhreppur. Árið 1987, þann 1. júlí,  voru Ketildalahreppur og Suðurfjarðahreppur sameinaðir í Bíldudalshrepp og þann 11. júní 1994 sameinuðust Bíldudalshreppur, Barðastrandahreppur, Patrekshreppur og Rauðasandshreppur í Vesturbyggð. Sameiningartillagan var felld  í kosningum á Tálknafirði og eru nú tvö sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga 20. nóvember 1993 samkvæmt samband.is

4601 Barðastrandarhreppur, á kjörskrá 95, já 63,6%, nei 36,4, samþykkt
4602 Rauðasandshreppur, á kjörskrá 62, já 52,1%, nei 47,9%, samþykkt
4603 Patrekshreppur, á kjörskrá 602, já 68,2%, nei 31,8%, samþykkt
4604 Tálknafjarðarhreppur, á kjörskrá 227, já 39,4%, nei 60,6%, felld
4606 Bíldudalshreppur, á kjörskrá 215, já 75,0%, nei 25,0%, samþykkt
Samtals á kjörskrá 1.201, já 61,8%, nei 38,2%

 

Tálknfirðingar kusu aftur um sameinginu 16. apríl 1994 og feldu sameiningartillöguna aftur. Gengið var til sameiningar þeirra sveitarfélaga sem samþykktu tillöguna á grundvelli þess ákvæði sveitastjórnarlaga að heimilt væri að sameina sveitarfélög ef íbúar í 2/3 hluta sveitarfélaga sem í hlut ættu samþykktu sameiningu í kosningum. Hið nýja sveitarfélag var því ekki í samræmi við þá tillögu sem íbúar svæðisins höfðu kosið um haustið 1993.

 

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga 8. október 2005 samkvæmt samband.is

4604 Tálknafjarðarhreppur, á kjörskrá 204, já 28,0%, nei 72,0%, felld
4607 Vesturbyggð, á kjörskrá 703, já 41,1%, nei 58,9%, felld
Samtals á kjörskrá 907, já 36,8%, nei 63,2%


Íbúar í Vesturbyggð voru 901 þann 1. desember 2008 samkvæmt vef Hagstofunnar.
Íbúar í Vesturbyggð voru 938 þann 1. desember 2009 samkvæmt vef Hagstofunnar.  

Um vef Vesturbyggðar - vesturbyggd.is

Vefur Vesturbyggðar er settur upp í vefumsjónarkerfinu Snerpli sem fyrirtækið Snerpa á Ísafirði rekur. Myndir í haus vefsins og á mörgum síðum eru teknar af Mats Wibe Lund og njóta höfundaréttarverndar samkvæmt lögum.

 

 

Vefnum er ætlað að þjónusta íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum annars vegar og ferðamenn hins vegar.

Atburðadagatal
« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir
Héðan og þaðan