Helgina 5.-6. október kl:15:00-19:00 á laugardeginum í SKOR kl: 10:00-14:00 á sunnudeginum í SKOR verður námskeið í Hugrænni atferlismeðferð. Hugræn atferlismeðferð hefur reynst vel við að takast á við vandamál daglegs lífs og er því fyrir alla. Þessar aðferðir nýtast líka vel þegar við finnum fyrir vanlíðan eins og til dæmis kvíða eða depurð, göngum í gegnum erfiða lífsreynslu eða samskipti við annað fólk veldur okkur vandræðum. Á námskeiðinu verða skoðuð tengsl hugsunar, hegðunar og líðan. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja kynna sér út á hvað hugræn atferlismeðferð gengur og læra aðferðir til að öðlast bætta líðan, nátökum á eigin tilfinningum, hugsunum og hegðun.
Kennarar: Auður Ólafsdóttir og Svanlaug Guðnadóttir hjúkrunarfræðingar við HSÍ.Verð kr: 19.900
Skráning á frmst.is
Velja nám og suðursvæði þar koma þau námskeið sem eru í boðihttp://www.frmst.is/index.php/namskeid/texti/hugraen_atferlismefer_patreksfjoerur/