Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir næstum 5 ári síðan.

17. júní á Hrafns­eyri

  • mánudaginn 17. júní kl. 13:00–00:00

  • Hrafnseyri
    Sjá á korti

13:00 – 13:45
Hátíðarguðþjónusta: sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir Þingeyrarprestakalli þjónar fyrir altari og sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti prédikar. Undirspil: Jóngunnar Biering Margeirsson.

14:15
Setning Þjóðhátíðar.

Tónlist: Jóngunnar Biering Margeirsson

Hátíðarræða: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

Vefsíðan Sagnabrunnur Vestfjarða verður kynntur: Kjartan Ólafsson

15:00
Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda.

Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.

Opnun myndlistarsýningar sumarsins eftir Harald Inga Haraldsson.

Börn geta farið á hestbak undir leiðsögn.

Kaffi og afmælisterta í boði Hrafnseyrar verður á meðan á dagskrá stendur fram til kl. 17:00. Einnig verður hægt að kaupa súpu með brauði.