Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir u.þ.b. 4 ári síðan.

Fundur um fjallskil

  • mánudaginn 2. mars kl. 19:30–21:00

  • Félagsheimili Patreksfjarðar
    Sjá á korti

Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar boðar hér með til fundar með sauðfjárbændum á sunnanverðum Vestfjörðum til að ræða framkvæmd við fjallskil. Tilgangur fundarins er að koma á samtali milli sveitarfélaganna og sauðfjárbænda um framkvæmd fjallskila og hvernig bæta megi framkvæmdina. Fundurinn fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar, mánudaginn 2. mars 2020
kl. 19:30.

Ólafur Dýrmundsson, doktor í búvísindum mun halda erindi um fjallskil og einnig verður farið yfir drög að fjallskilaseðli 2020.

Við hvetjum sauðfjárbændur til að mæta til fundarins og taka þátt í samtalinu um að bæta framkvæmd fjallskila.

 

Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar