Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir næstum 5 ári síðan.

Gegnsæ kynni - list­rænn gjörn­ingur

  • 13. til 17. júní

  • Íþróttamiðstöðin Brattahlíð
    Sjá á korti

Hyunji Jung er listakona frá Kóreu og er búsett í Frakklandi.
Henni langar að læra meira um lífið og tilveruna hér með hjálp fólksins í bænum.
Í lauginni biður hún fólk um að kenna sér, og skrifa, íslenskt orð sem er þeim kært á handriðsglerið við bakkann. Notuð verður AB-mjólk til þess að skrifa orðin. Sá gjörningur er myndaður með venjulegum snjallsíma. Hún vinnur síðan út áhugaverðar myndir útfrá orðunum og umhverfinu sem glerið sameinar.

Myndavél verður staðsett í litlu plássi við handriðið. Myndavélin mun ekki þvælast fyrir sundgestum og engin hætta er á að vera tekinn upp, nema að viðkomandi samþykki að taka þátt í gjörningnum. Myndavélin verður aðeins sett í gang þegar viðkomandi samþykkir að taka þátt.

Skoða viðburð á Facebook