Heilbrigðisstefna til ársins 2030 - kynningarfundur
þriðjudaginn 18. júní kl. 17:00–19:00
Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði
Sjá á korti
Opinn kynningarfundur verður haldinn í fundarsal hjúkrunarheimilisins Eyra á Ísafirði 18. júní kl. 17:00 – 19:00.
Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn.
Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni,
hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í
þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins. Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum
landsins, en fundurinn á Ísafirði er annar í röðinni.
Dagskráin er eftirfarandi:
• Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
• Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða – sýn forstjóra
• Pallborðsumræður
• Heilbrigðisráðherra – samantekt
• Fundarslit
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.