Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir næstum 5 ári síðan.

Prjóna- og list­sköp­un­ar­kvöld ásamt húslestri

Það verður prjóna-og listsköpunarkvöld í Húsinu næstkomandi mánudag, þann 27. maí ásamt bókakvöldi í bókaklúbbnum Húslestri. Arnheiður Jónsdóttir verður á staðnum til að leiðsegja fólki varðandi prjónaskapinn. Að auki er hægt að koma og mála, lita eða teikna eins og venjulega á listsköpunarkvöldum. Svo mun bókaklúbburinn Húslestur ræða næstu bók sína þetta kvöld. Í Húsinu er notalegt andrúmsloft og hægt verður að kaupa kaffi, te og kalda drykki. Allir eru velkomnir!

Skoða viðburð á Facebook