Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #296

Fundur haldinn í Félagsheimilið Baldurshagi á Bíldudal, 27. apríl 2016 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 296. fundar miðvikudaginn 27. apríl 2016 kl. 17:00 í félagsheimilinu Baldurshaga við Tjarnarbraut 4, Bíldudal. Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

    Fundargerðir til staðfestingar

    1. Bæjarstjórn - 295

    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1604004F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Bæjarráð - 762

      Fundargerðin er í 1. tölulið.
      Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri og ÁS.
      Fundargerðin samþykkt samhljóða.

        Málsnúmer 1604007F

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Bæjarráð - 763

        Fundargerðin er í 8. töluliðum.
        Til máls tóku: Bæjarstjóri, forseti, HT, ÁS, NÁJ, GÆÁ og ÁDF.
        3.tölul. Bæjarstjórn samþykkir 3ja mánaða launað námsleyfi félagsmálastjóra. Skilyrði er að starfsmaðurinn komi til starfa að námsleyfi loknu.
        6.tölul. ÁDF lét bóka að hún taki ekki þátt í afgreiðslu dagskrárliðarins.
        Fundargerðin samþykkt samhljóða.

          Málsnúmer 1604008F

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Velferðarráð - 9

          Fundargerðin er í 2. töluliðum.
          Fundargerðin samþykkt samhljóða.

            Málsnúmer 1604001F

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Fræðslu og æskulýðsráð - 23

            Fundargerðin er í 9. töluliðum.
            Til máls tóku: Bæjarstjóri, forseti, GÆÁ, ÁS, HT, ÁDF, NÁJ og MJ.
            3.tölul. Bæjarstjórn samþykkir að Grunnskóli Vesturbyggðar, í þeirri mynd sem hann er nú, verði lagður niður og stofnaðir verði tveir sjálfstæðir skólar, Patreksskóli og Bíldudalsskóli sem taki til starfa frá og með næsta skólaári (2016-2017). Birkimelsskóli heyri undir Patreksskóla. Bæjarstjóra falið að ganga frá stofnun skólanna, sjá um skráningu þeirra hjá þar til bærum aðilum og auglýsa eftir skólastjórum fyrir skólana tvo.
            Fundargerðin samþykkt samhljóða.

              Málsnúmer 1603014F

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              6. Hafnarstjórn - 143

              Fundargerðin er í 7. töluliðum.
              Til máls tóku: Bæjarstjóri, MJ og GÆÁ.
              Fundargerðin samþykkt samhljóða.

                Málsnúmer 1604010F

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Almenn erindi

                7. Ársreikningur 2015.

                Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015 ásamt sundurliðunarbók og skýrslu löggiltra endurskoðenda sveitarfélagsins.
                Til máls tóku: Bæjarstjóri, forseti, skrifstofustjóri og ÁS.
                Ekki eru breytingar á niðurstöðu ársreiknings á milli umræðna og bókaði bæjarstjórn: ”Niðurstaða ársreiknings Vesturbyggðar fyrir árið 2015 er ívið lakari en fjárhagsáætlun ársins 2015 með viðaukum, og skilar samstæða Vesturbyggðar, A og B-hluti 19,1 millj. kr. neikvæðum rekstrarafgangi. Skýrist það einkum af hækkuðum launakostnaði vegna kjarasamningsbreytinga og hækkunum á lífeyrissjóðs-skuldbindingum sveitarfélagsins. Þá hefur verið framkvæmt mjög mikið í sveitarfélaginu á liðnu ári. Tekjur sveitarfélagsins eru hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2015. Skuldahlutfall er ívið hærra og er nú 115%, en það var 110% í árslok 2014 og 136% í árslok 2013. Íbúum hefur fjölgað um 1,9% á milli ára.“

                Helstu lykiltölur úr ársreikningi samstæðu Vesturbyggðar:

                ?Niðurstaða rekstrar er neikvæð um 19,1 millj.kr. og skuldahlutfall nemur 115% í árslok 2015. Þetta hlutfall var 110% í árslok 2014.
                ?Bókfærðar heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins eru 146 millj.kr. hærri í árslok 2015 en í árslok 2014.
                ?Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2015 námu rekstrartekjur A og B-hluta 1.199 millj. kr. samanborið við 1.118 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun milli ára nemur því 81 millj. kr.
                ?Rekstrargjöld A og B-hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 2015 1.167 millj. kr. en voru 1.046 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun frá fyrra ári 121 millj. kr.
                ?Í ársreikningi kemur fram að mismunur tekna og gjalda A-hluta er neikvæður um 40,0 millj.kr. á árinu 2015 en var jákvæður um 11,5 millj. kr. á árinu 2014.
                ?Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir og Fasteignir Vesturbyggðar ehf. teljast til B-hluta sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða B-hluta í heild sinni er jákvæð um 22,6 millj. kr.
                ?Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B-hluta árið 2015 námu 51 millj. kr. en fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 38 millj. kr. árið 2014.
                ?Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti nam veltufé frá rekstri A og B-hluta 56 millj. kr. á árinu 2015 samanborið við 86 millj. kr. á árinu 2014. Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum nam handbært fé frá rekstri A og B-hluta 105 millj. kr. á árinu 2015 samanborið við handbært fé frá rekstri 83 millj. kr. á árinu 2014.
                ?Neikvæðar fjárfestingarhreyfingar (útborganir umfram innborganir) á árinu 2015 í A og B-hluta námu 156,3 millj. kr. samanborið við 73,8 millj. kr. neikvæðar fjárfestingarhreyfingar á árinu 2014.
                ?Lántökur umfram afborganir langtímalána námu 79 millj. kr. samanborið við afborganir umfram lántökur, 13 millj. kr. árið áður.
                ?Handbært fé hækkaði um 28 millj. kr. á árinu og nam það 44,3 millj. kr. í árslok 2015.“

                Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ársreikning bæjarsjóðs Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015.

                  Málsnúmer 1604001 5

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00