Hoppa yfir valmynd

Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar #2

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 26. ágúst 2013 og hófst hann kl. 15:00

    Fundargerð ritaði
    • Lilja Magnúsdóttir

    Almenn erindi

    1. Umræða um reglur er varða fjallskil í Vesturbyggð og Tálknafirði

    Eftirfarndi var samþykkt samhljóða í nefndinni.

    1. Nefndarmenn eru sammála um að fjárlausir landeigendur muni ekki bera kostnað af smölun, hvorki með álagningu fjallskilagjalda eða með álagningu á landverð.

    2. Nefndarmenn eru sammála um að fjáreigendur sjái um að smala þau svæði þar sem þeir eiga fjárvon í samstarfi hver við annan líkt og verið hefur.

    3. Sveitarfélögin/fjallskilasjóður verða að sjá til þess að skilaréttir séu tiltækar (fastar eða færanlegar) ef ekki semst um afnot af réttum eða aðstöðu hjá landeigendumJafnframt þarf að leita leiða til að tryggja að óskilafé verði sótt og komið til síns heima sæki eigendur það ekki í rétt þar sem það smalast. Þeir sem ábyrgir eru fyrir smalamennsku á hverjum stað verða að láta eigendur eða fjallskilanefnd vita um aðkomufé svo hægt sé að sækja það í réttina sem allra fyrst.

    4. Þau svæði þar sem enginn telur sig eiga fjárvon svo sem landið frá Sveinseyri í Tálknafirði út að Bakka sem og á fleiri svæðum, verði smöluð á ábyrgð fjallskilasjóðs. Kanna þarf leiðir til að kostnaður af þessum smalamennskum lendi á þeim sem eiga heimt fé en ekki á öllum fjáreigendum.

      Málsnúmer 1308053

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00