Hoppa yfir valmynd

Hafnarstjórn #138

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 27. maí 2015 og hófst hann kl. 08:00

    Fundargerð ritaði
    • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri

    Almenn erindi

    1. Lóðarumsókn - Hafnarteigur 1

    Lögð fram til umsagnar umsókn Arnarlax hf. um lóð að Hafnarteig 1, Bíldudal.

    Hafnarstjórn Vesturbyggðar leggur til við skipulags- og umhverfisráð að umsókninni verði hafnað og lóðin tekin af skipulagi. Umsvif eru að aukast á og við hafnarsvæði á Bíldudal og lítið athafnasvæði er fyrir starfsemi hafnarinnar og nauðsynlegt er að horfa til framtíðar og huga að þörfum hafnarsjóðs á svæðinu.

      Málsnúmer 1504012 3

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Lóðarumsókn - Hafnarteigur 1 - ÍsKalk

      Lögð fram til umsagnar umsókn Íslenska Kalkþörungafélagsins um lóð að Hafnarteig 1, Bíldudal.

      Hafnarstjórn Vesturbyggðar leggur til við skipulags- og umhverfisráð að umsókninni verði hafnað og lóðin tekin af skipulagi. Umsvif eru að aukast á og við hafnarsvæði á Bíldudal og lítið athafnasvæði er fyrir starfsemi hafnarinnar og nauðsynlegt er að horfa til framtíðar og huga að þörfum hafnarsjóðs á svæðinu.

        Málsnúmer 1505025 3

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        5. Framkvæmdir 2015

        Farið yfir flotbryggjuframkvæmdir. Lögð fram tilboð frá Króla ehf og Esju-einingum.
        Tilboð Króla hljóðar upp á: Patreksfjörður kr. 30.852.033,-
        Bíldudalur kr. 7.466.866,-
        Samþykkt að taka tilboði frá Króla ehf. Framkvæmdir munu hefjast í júlí. Forstöðumanni tæknideildar falið að fylgja málinu eftir.

        Farið yfir verð og tillögur að dýpkun í Patrekshöfn. Forstöðumanni Tæknideildar falið að ræða við Hagtak og Björgun vegna dýpkunar. Miðað við 4400 rúmmetrar. Ákvörðun frestað til næsta fundar þegar verð liggja fyrir.

        Rætt um lóðamál við Brjánslækjarhöfn og umgengni við hafnarsvæði. Hafnarstjóra og forstöðumanni tæknideildar falið að ræða við hlutaðeigandi aðila.

          Málsnúmer 1501037 13

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          6. Brjánslækjarhöfn-tillögur Siglingastofnunar

          Lagðar fram 3 tillögur að bættri hafnaraðstöðu á Brjánslæki frá Siglingasviði Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn samþykkir að birta tillögurnar á vef Vesturbyggðar og að haldinn verði opinn fundur þar sem tillögurnar yrðu kynntar frekar.

            Málsnúmer 1505054

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            Til kynningar

            3. Hafnarsamband Ísl. Efni:Aflagjald af sjóeldisfiski svar við erindi Vb

            Lagt fram svar frá Hafnasambandi Íslands vegna aflagjalds af sjóeldisfiski.

              Málsnúmer 1503056

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              4. Hafnasamband Ísl. fundargerð stjórnar nr.374

              Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga nr. 374.

                Málsnúmer 1504039

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 00:00