Hoppa yfir valmynd

Umsókn um byggingarleyfi - klæðning og breyting á burðarvirki. Íþróttamiðstöðin Bröttuhlíð.

Málsnúmer 1508006

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

24. ágúst 2015 – Skipulags og umhverfisráð

Umsókn um byggingarleyfi frá Vesturbyggð. Sótt er um byggingarleyfi fyrir klæðningu burðarsúlna við suð- og norð- vesturhlið íþróttamiðstöðvarinnar Bröttuhlíð, Aðalstræti 55, Patreksfirði. Einnig er sótt um byggingarleyfi fyrir breytingum á burðarvirki við þreksal og kjallara undir þreksal. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkís verkfræðistofu, teiknistofu GINGA og egg arkitektum dags. 07.04.2015 og 14.09.2014.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis.