Hoppa yfir valmynd

Ársreikningur 2015.

Málsnúmer 1604001

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

15. júní 2016 – Bæjarstjórn

Lagður fram leiðréttur ársreikningur 2015, en á aðalfundi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks 4. maí sl. var samþykkt að færa aukaframlög aðildarsveitarfélaganna á árinu 2015 sem skammtímakröfu sveitarfélaganna á hendur BsVest í stað þess að þau gjaldfæri þá greiðslu sem framlag ársins. Aukaframlag Vesturbyggðar nam 10,3 millj.kr. og lækkar rekstrarhalli ársins sem því nemur (úr 19,1 millj.kr. í 8,8 millj.kr.).
Til máls tók: Forseti.
Ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015 svo breyttur samþykktur samhljóða.




27. apríl 2016 – Bæjarstjórn

Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015 ásamt sundurliðunarbók og skýrslu löggiltra endurskoðenda sveitarfélagsins.
Til máls tóku: Bæjarstjóri, forseti, skrifstofustjóri og ÁS.
Ekki eru breytingar á niðurstöðu ársreiknings á milli umræðna og bókaði bæjarstjórn: ”Niðurstaða ársreiknings Vesturbyggðar fyrir árið 2015 er ívið lakari en fjárhagsáætlun ársins 2015 með viðaukum, og skilar samstæða Vesturbyggðar, A og B-hluti 19,1 millj. kr. neikvæðum rekstrarafgangi. Skýrist það einkum af hækkuðum launakostnaði vegna kjarasamningsbreytinga og hækkunum á lífeyrissjóðs-skuldbindingum sveitarfélagsins. Þá hefur verið framkvæmt mjög mikið í sveitarfélaginu á liðnu ári. Tekjur sveitarfélagsins eru hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2015. Skuldahlutfall er ívið hærra og er nú 115%, en það var 110% í árslok 2014 og 136% í árslok 2013. Íbúum hefur fjölgað um 1,9% á milli ára.“

Helstu lykiltölur úr ársreikningi samstæðu Vesturbyggðar:

?Niðurstaða rekstrar er neikvæð um 19,1 millj.kr. og skuldahlutfall nemur 115% í árslok 2015. Þetta hlutfall var 110% í árslok 2014.
?Bókfærðar heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins eru 146 millj.kr. hærri í árslok 2015 en í árslok 2014.
?Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2015 námu rekstrartekjur A og B-hluta 1.199 millj. kr. samanborið við 1.118 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun milli ára nemur því 81 millj. kr.
?Rekstrargjöld A og B-hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 2015 1.167 millj. kr. en voru 1.046 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun frá fyrra ári 121 millj. kr.
?Í ársreikningi kemur fram að mismunur tekna og gjalda A-hluta er neikvæður um 40,0 millj.kr. á árinu 2015 en var jákvæður um 11,5 millj. kr. á árinu 2014.
?Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir og Fasteignir Vesturbyggðar ehf. teljast til B-hluta sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða B-hluta í heild sinni er jákvæð um 22,6 millj. kr.
?Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B-hluta árið 2015 námu 51 millj. kr. en fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 38 millj. kr. árið 2014.
?Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti nam veltufé frá rekstri A og B-hluta 56 millj. kr. á árinu 2015 samanborið við 86 millj. kr. á árinu 2014. Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum nam handbært fé frá rekstri A og B-hluta 105 millj. kr. á árinu 2015 samanborið við handbært fé frá rekstri 83 millj. kr. á árinu 2014.
?Neikvæðar fjárfestingarhreyfingar (útborganir umfram innborganir) á árinu 2015 í A og B-hluta námu 156,3 millj. kr. samanborið við 73,8 millj. kr. neikvæðar fjárfestingarhreyfingar á árinu 2014.
?Lántökur umfram afborganir langtímalána námu 79 millj. kr. samanborið við afborganir umfram lántökur, 13 millj. kr. árið áður.
?Handbært fé hækkaði um 28 millj. kr. á árinu og nam það 44,3 millj. kr. í árslok 2015.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ársreikning bæjarsjóðs Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015.




13. apríl 2016 – Bæjarstjórn

Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015 ásamt sundurliðunarbók.
Til máls tóku: Bæjarstjóri, skrifstofustjóri, forseti, ÁS og ÁDF.
Bæjarstjórn lagði fram bókun: ”Bæjarstjórn lagði fram bókun: ”Niðurstaða ársreiknings Vesturbyggðar fyrir árið 2015 er ívið lakari en fjárhagsáætlun ársins 2015 með viðaukum, og skilar samstæða Vesturbyggðar, A og B-hluti 19,1 millj. kr. neikvæðum rekstrarafgangi. Skýrist það einkum af hækkuðum launakostnaði vegna kjarasamningsbreytinga og hækkunum á lífeyrissjóðsskuldbindingum sveitarfélagsins. Þá hefur verið framkvæmt mjög mikið í sveitarfélaginu á sl. ári. Tekjur sveitarfélagsins eru hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2015. Skuldahlutfall hefur er ívið hærra og er nú 115%, en það var 110% í árslok 2014 og 136% í árslok 2013. Íbúum hefur fjölgað um 1,9% á milli ára.“

Helstu lykiltölur úr ársreikningi samstæðu Vesturbyggðar:

-Niðurstaða rekstrar er neikvæð um 19,1 millj.kr. og skuldahlutfall nemur 115% í árslok 2015. Þetta hlutfall var 110% í árslok 2014.
-Bókfærðar heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins eru 146 millj.kr. hærri í árslok 2015 en í árslok 2014.
-Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2015 námu rekstrartekjur A og B-hluta 1.199 millj. kr. samanborið við 1.118 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun milli ára nemur því 81 millj. kr.
-Rekstrargjöld A og B-hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 2015 1.167 millj. kr. en voru 1.046 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun frá fyrra ári 121 millj. kr.
-Í ársreikningi kemur fram að mismunur tekna og gjalda A-hluta er neikvæður um 40,0 millj.kr. á árinu 2015 en var jákvæður um 11,5 millj. kr. á árinu 2014.
-Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir og Fasteignir Vesturbyggðar ehf. teljast til B-hluta sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða B-hluta í heild sinni er jákvæð um 22,6 millj. kr.
-Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B-hluta árið 2015 námu 51 millj. kr. en fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 38 millj. kr. árið 2014.
-Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti nam veltufé frá rekstri A og B-hluta 56 millj. kr. á árinu 2015 samanborið við 86 millj. kr. á árinu 2014. Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum nam handbært fé frá rekstri A og B-hluta 105 millj. kr. á árinu 2015 samanborið við handbært fé frá rekstri 83 millj. kr. á árinu 2014.
-Neikvæðar fjárfestingarhreyfingar (útborganir umfram innborganir) á árinu 2015 í A og B-hluta námu 156,3 millj. kr. samanborið við 73,8 millj. kr. neikvæðar fjárfestingarhreyfingar á árinu 2014.
-Lántökur umfram afborganir langtímalána námu 79 millj. kr. samanborið við afborganir umfram lántökur 13 millj. kr. árið áður.
-Handbært fé hækkaði um 28 millj. kr. á árinu og nam það 44,3 millj. kr. í árslok 2015.“
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi 2015 til seinni umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar sem verður miðvikudaginn 27. apríl nk.




12. apríl 2016 – Bæjarráð

Lagður fram ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2015.
Bæjarráð vísar ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.




5. apríl 2016 – Bæjarráð

Lögð fram útskrift rekstrar ársins 2015. Ársreikningur 2015 er í vinnslu og verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 13. apríl nk.