Hoppa yfir valmynd

Ráðning skólastjóra.

Málsnúmer 1606005

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

14. júní 2016 – Fræðslu og æskulýðsráð

Fundur haldinn með bæjarráði Vesturbyggðar.
Viðtöl við tvo umsækjendur um stöðu skólastjóra Patreksskóla, Gústaf Gústafsson og Kristján Arnar Ingason.
Alls sóttu 6 um starfið, tveir umsækjendur uppfylltu ekki skilyrði auglýsingar. Viðtöl voru tekin við 4 aðila af Attentus-mannauður og ráðgjöf. Niðurstaðan var að boða Gústaf og Kristján í viðtal hjá fræðsluráði og bæjarráði.

Fræðsluráð leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að Gústaf Gústafsson verði ráðinn skólastjóri Patreksskóla.

Fræðsluráð leggur til við bæjarstjórn að Ásdís Snót Guðmundsdóttir verði ráðin skólastjóri Bíldudalsskóla. Ásdís Snót var eini umsækjandi um stöðuna.




13. júní 2016 – Bæjarráð

Viðtöl tekin við tvo umsækjendur um stöðu skólastjóra Patreksskóla, Gústaf Gústafsson og Kristján Arnar Ingason.
Alls sóttu 6 um starfið, tveir umsækjendur uppfylltu ekki skilyrði auglýsingar. Viðtöl voru tekin við 4 aðila af Attentus-mannauður og ráðgjöf. Niðurstaðan var að boða Gústaf og Kristján í viðtal hjá fræðsluráði og bæjarráði.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að Gústaf Gústafsson verði ráðinn skólastjóri Patreksskóla.

Bæjaráð leggur til við bæjarstjórn að Ásdís Snót Guðmundsdóttir verði ráðin skólastjóri Bíldudalsskóla. Ásdís Snót var eini umsækjandi um stöðuna.