Hoppa yfir valmynd

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - umsagnarbeiðni, Aðalstræti 62 ehf.

Málsnúmer 1606010

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

13. júní 2016 – Skipulags og umhverfisráð

Lagt fram bréf, dags. 08.06.16, frá sýslumanninum á Vestfjörðum með ósk um umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki IV fyrir Aðalstræti 62 ehf, að Aðalstræti 62, 450 Patreksfirði. kt.550313-0220. Sótt er um gistileyfi fyrir allt að 40 gesti.

Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki IV að Aðalstræti 62, 450 Patreksfirði.




13. júní 2016 – Bæjarráð

Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 8. júní sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi að reka gistingu samkvæmt gistiflokki IV í Hotel West, Aðalstræti 62 Patreksfirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu nýs rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki IV í Hotel West, Aðalstræti 62 Patreksfirði.