Hoppa yfir valmynd

Skipulagsstofnun - Beiðni um umsögn á frummatskýrslu um framleiðslu á 4000 tonnum af laxi í kynslóðaskiptu eldi í Arnarfirði

Málsnúmer 1804015

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

18. júní 2018 – Bæjarráð

Lagt fram bréf tölvupóstur dags. 3. apríl sl. frá Skipulagsstofnun þar sem óskað er umsagnar um frummatsskýrslu um framleiðslu á 4.000 tonnum af laxi í kynslóðaskiptu eldi í Arnarfirði. Sveitarfélagið Vesturbyggð gerir ekki athugasemd við frummatsskýrsluna. Bæjarráð Vesturbyggðar bendir á að hafa ber í huga samfélagsleg áhrif af slíkri uppbyggingu svo og mikilvægi þess að opinberar eftirlitsstofnanir sinni hlutverki sínu af alúð í þágu umhverfis og lífríkis sjávar m.a. með því að hafa fasta starfsstöð á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem á landssvæðinu er eitt umfangsmesta sjókvíaeldi í landinu.