Hoppa yfir valmynd

Aðalfundur Vestur-Botn ehf. 2019

Málsnúmer 1908067

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

9. september 2019 – Vestur-Botn

1. Setning aðalfundar
Formaður stjórnar Sigurður Viggósson setti fundinn eftir að hafa kannað lögmæti fundarins.

2. Kosning fundastjóra og ritara
Formaður lagði til að Rebekka Hilmarsdóttir yrði fundarstjóri og Gerður Björk Sveinsdóttir ritaði fundargerð. Samþykkt samhljóða.

3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Formaður fór yfir skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Stjórn Vesturbotns fundaði tvisvar á árinu 2018, þ.e. 20. ágúst 2018 og 12. nóvember 2018. Hagnaður af rekstri félagsins var á árinu 2018 að fjárhæð 2,9 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé félagsins nam í árslok 36,7 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af nemur hlutafé félagsins 500 þús. kr. Engin breyting varð á hlutafé félagsins og er það 0,5 millj. kr. í árslok og allt hlutafé er í eigu sveitarfélagsins Vesturbyggð.

4. Lagður fram endurskoðaður ársreikningur félagsins.
Lagður var fram ársreikningur ársins 2018 ásamt áritun endurskoðenda. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar fór yfir helstu liði árreikningsins en hann sýnir að rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjarmagnsgjalda er 340.427 kr. Fjármunatekjur eru 3.229.627 kr. og hagnaður ársins því 2.889.200 kr. Eigið fé er 37.550.246 kr. og skammtímaskuldir 819.383 kr.

Ársreikningurinn var ræddur, síðan borin upp til samþykktar. Ársreikningurinn 2018 var samþykktur samhljóða og áritaður af stjórn og framkvæmdastjóra.

5.Meðferð hagnaðar eða taps félagsins á árinu. Hagnaði verði ráðstafað til hækkunar á eigin fé.

6. Kosning formanns.
Endurkjörinn var formaður Sigurður V. Viggósson.

7. Kosning tveggja meðstjórnenda.
Endurkjörin Arnheiður Jónsdóttir og Hjörtur Sigurðsson.

8. Kostning þriggja varamanna í stjórn.
Endurkjörin voru Magnús Jónsson, Guðrún Bergmann Leifsdóttir og Barði Sæmundsson.

9. Kosning löggilts endurskoðanda.
Lögð var fram tillaga um að Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi hjá KPMG ehf. sinni áfram endurskoðun fyrir félagið. Samþykkt samhljóða.

10. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna, varamanna og endurskoðanda.
Lögð fram tillaga um að þóknun stjórnar fyrir fundarsetur verði óbreytt þannig að hún sé sú sama og þóknun til nefndarsetu í nefndum Vesturbyggðar. Greiðsla til löggiltra endurskoðenda skal vera skv. framlögðum reikningi. Samþykkt samhljóða.

11. Önnur mál
Engin önnur mál lágu fyrir.