Hoppa yfir valmynd

Umsögn og upplýsingar varðandi siglingaleiðir í Patreks- og Tálknafirði

Málsnúmer 2102079

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

15. mars 2021 – Hafna- og atvinnumálaráð

Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 25.02.2021. Í erindinu er óskað umsagnar varðandi siglingaleiðir á svæðinu og umferð skipa/báta í tengslum við færslu eldissvæða hjá Fjarðalax og Arctic Fish í Patreks- of Tálknafirði.

Hafna- og atvinnumálaráð gerir ekki athugasemd við færslu eldissvæðanna, en svæðin skulu vera merkt skv. 35. gr. reglugerðar 540/2020 um fiskeldi. Hafnastjóra falið að senda inn með umsögn afmörkun Patrekshafnar.