Hoppa yfir valmynd

Aðalfundur Fasteignir Vesturbyggðar ehf. 2021

Málsnúmer 2107015

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

4. ágúst 2021 – Fasteignir Vesturbyggðar

1. Setning aðalfundar
Varaformaður stjórnar Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn eftir að hafa kannað lögmæti fundarins.

2. Kosning fundastjóra og ritara
Varaformaður lagði til að Rebekka Hilmarsdóttir yrði fundarstjóri og ritaði fundargerð. Samþykkt samhljóða.

3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Framkvæmdastjóri fór yfir skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar fundaði einu sinni á árinu 2020, þann 9. febrúar 2021. Hagnaður varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 31,3 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 71,9 millj. kr.

4. Lagður fram endurskoðaður ársreikningur félagsins.
Lagður var fram ársreikningur ársins 2020. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjarmagnsgjalda er 41.656.973 kr. Fjármagnsgjöld eru 10.316.256 kr. og hagnaður ársins 31.340.717 kr. Eigið fé var 71.945.332 kr. og skuldir 150.655.777 kr.

Ársreikningurinn var ræddur, síðan borin upp til samþykktar. Ársreikningurinn 2020 var samþykktur samhljóða og verður árritaður af stjórn og framkvæmdastjóra.

5.Meðferð hagnaðar eða taps félagsins á árinu.
Stjórn félagsins gerir ekki tillögu um arðgreiðslu til hluthafa á árinu 2021 vegna ársins 2020 en vísað er til ársreiknings um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum á árinu.

6. Leiguverð
Leiguverð í eignum félagsins er ákvarðað skv. gjaldskrá Vesturbyggðar.

7. Kosning formanns.
Kjörinn var formaður Þórkatla Soffía Ólafsdóttir.

8. Kosning tveggja meðstjórnenda.
Kjörin voru Iða Marsibil Jónsdóttir og Ásgeir Sveinsson.

9. Kosning þriggja varamanna í stjórn.
Kjörnir voru Jón Árnason, María Ósk Óskarsdóttir og Magnús Jónsson.

10. Breyting á samþykktum félagsins.
Lagðar fram uppfærðar samþykktir félagsins. Samþykktirnar ræddar og síðan bornar upp til samþykktar.

11. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns
Lögð var fram tillaga um að KPMG ehf. sinni áfram endurskoðun án áritunar fyrir félagið. Samþykkt samhljóða.

12. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna, varamanna og endurskoðanda.
Lögð fram tillaga um að þóknun stjórnar fyrir fundarsetur verði óbreytt þannig að hún sé sú sama og þóknun til nefndarsetu í nefndum Vesturbyggðar. Greiðsla til löggiltra endurskoðenda skal vera skv. framlögðum reikningi. Samþykkt samhljóða.

13. Önnur mál
Engin önnur mál lágu fyrir.




4. ágúst 2021 – Bæjarráð

Lagður fram til kynningar ásreikningur Fasteigna Vesturbyggðar 2020.