Hoppa yfir valmynd

Umsagnarbeiðni -breyting á afmörkun eldissvæðavið Hlaðsbót, Tjaldanes, Hringsdal og Krikjuból í Arnarfirði

Málsnúmer 2209032

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

17. október 2022 – Hafna- og atvinnumálaráð

Valdimar Bernódus Ottósson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Lagður fram tölvupóstur, dags. 13. September frá Skipulagsstofnun þar sem óskað er umsagnar Vesturbyggðar vegna framkvæmdar Arnarlax um breytingu á afmörkun eldissvæða við Hlaðsbót, Tjaldanes, Hringsdal og Kirkjuból í Arnarfirði.

Hafna- og atvinnumálaráð telur að nægjanlega sé gert grein fyrir framkvæmdinni í framlögðum gögnum framkvæmdaaðila og telur að framkvæmdin kalli ekki á gerð umhverfismats.

Valdimar Bernódus Ottósson kom aftur inn á fundinn.