Hoppa yfir valmynd

Reglur um afslátt af fasteignaskatti og styrki til greiðslu fasteignaskatts 2023

Málsnúmer 2301020

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

25. janúar 2023 – Bæjarstjórn

Lagðar fram reglur um afslátt af fasteignaskatti og styrki til greiðslu fasteignaskatts 2023 ásamt upplýsingum til greiðenda fasteignagjalda í Vesturbyggð 2023.

Efnislega eru ekki gerðar breytingar frá árinu áður, en uppfærð í samræmi við fjárhagsáætlun 2023 og afsláttur hækkaður í samræmi við aðrar breytingar á gjaldskrám.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn Vesturbyggðar staðfestir þær reglur sem lagðar eru fram hér um afslátt af fasteignaskatti og styrki til greiðslu fasteignaskatts 2023.