Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og byggingarnefnd #177

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 15. apríl 2013 og hófst hann kl. 08:30

    Fundargerð ritaði
    • Ármann Halldórsson byggingarfulltrúi

    Almenn erindi

    1. Hlaðseyri umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun og útlit

    Erindi frá Hlaðseyri ehf. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir stækkun og breyttu innra skipulagi á bílskúr og íbúðarhúsnæði á Hlaðseyri landnúmer 139871. Erindinu fylgja teikningar unnar af teiknistofunni Gingi kt. 110254-3349. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

      Málsnúmer 1303055

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Laxeldi, efnislosun og efnistaka, landnotkun í útjaðri þéttbýla og iðnaðarsvæði á Bíldudal

      Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi þann 10. desember 2013 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna laxeldis, urðunar, landnotkunar í fjallshlíðum þéttbýla, iðnaðarsvæðis á Bíldudal og Aðalstræti 100 og nágrennis. Skipulagstillögunni fylgdi umhverfisskýrsla. Tillagan var auglýst frá 1. janúar 2013 með athugasemdarfresti til 26. febrúar 2013. Umsagnir bárust frá Skógrækt ríkisins, Fornleifavernd ríkisins, Umhverfisstofnun, Veðurstofu Íslands, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða og Fiskistofu. Búið er að verða við umsögnum umsagnaraðila. Við auglýsingu á skipulagslýsingunni vegna aðalskipulagsbreytingarinnar barst undirskriftalisti með bréfi frá 41 íbúa Patreksfjarðar þar sem mótmælt er skilgreiningu á urðunarstað í Vatneyrarhlíðum. Í bréfinu er því mótmælt að endurvekja eigi gamla sorphauga á svæðinu með tilheyrandi mengun og að of stutt sé í núverandi byggð frá urðunarstaðnum. Vitnað var í reglugerð um urðun úrgangs nr. 783/2003 og eftirlitsskýrslu Umhverfisstofnunar frá 4.9.2012. Í bréfinu og eftirlitsskýrslunni eru þessi atriði reifuð og einnig bent á að stöðugleika urðunarstaðarins sé ábótavant. Skipulags- og byggingarnefnd fagnar þeim áhuga sem beinist að málefninu og bendir á að með breytingu á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags fyrir svæðið er m.a. verið að taka á þeim vandamálum sem að hluta til er bent á í athugasemdunum. Nefndin bendir á að með skilgreiningu núverandi urðunarstaðar í efnislosunarsvæði er ekki verið að endurvekja fyrirkomulag sorpurðunar í Vatneyrarhlíðum, þegar almennt heimilissorp var urðað í hlíðinni, heldur er verið að tryggja að starfsleyfi svæðisins falli undir Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða. Fyrirkomulagi efnislosunar verði þannig háttað að stöðugleiki svæðisins verður bættur og að svæðinu verði lokað fyrir efnislosun að því loknu. Nánari skilyrði um fegrun svæðisins og lokun þess eru að finna í deiliskipulagstillögu af svæðinu sem var auglýst með aðalskipulagsbreytingunni. Nefndin áréttar að svæðinu verði lokað að loknum framkvæmdum og var sett inn ákvæði í aðalskipulagið um að efnislosunarsvæðið sé víkjandi.
      Athugasemd barst frá eiganda sumarhús í Dufansdal vegna lýsingarinnar. Í athugsemdinni er lýst yfir áhyggjum vegna mögulegra mengunar frá fyrirhuguðu laxeldi í Dufansdal. Einnig er spurt um hvort breytingin hafi áhrif fyrri skipulagsáætlanir eða eignarhald sem tengjast sumarhúsabyggð í Dufansdal. Nefndin bendir á að Mengun s.s hávaði eða ljósmengun mun vera innan marka viðeigandi laga og mun ekki hafa teljandi áhrif á núverandi frístundabyggð. Nánari útfærslu á þessum atriðum verður að finna í deiliskipulagi fyrir svæðið og að breytingin hefur ekki áhrif á eignamyndun á svæðinu.
      Haldin var kynning fyrir íbúa föstudaginn 7. desember 2012, kl. 18:10 í Félagsheimili Patreksfjarðar. Umræður sköpuðust á fundinum og athugasemdir bárust. Gerðar voru efnis- og orðalagsbreytingar með hliðsjón af framkomnum athugasemdum meðal annars að skilgreina svæði fyrir efnislosun en ekki urðun í Vatneyrarhlíðum og nefnist þá skipulagsbreytingin breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna laxeldis, efnislosun og efnistaka, landnotkun í fjallshlíðum þéttbýla, iðnaðarsvæði á Bíldudal og Aðalstræti 100 og nágrenis. Skipulags- og byggingarnefnd felur byggingarfulltrúa að svara öllum þeim sem gerðu athugasemdir með bókun nefndarinnar og í takt við umræður á fundinum. Að öðru leyti samþykkir nefndin tillöguna og felur byggingarfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu skv. 32. gr. laga nr.123/2010

        Málsnúmer 1208019 8

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Umsókn um byggingarleyfiDalbraut 1 á Bíldudal

        Erindi frá EagleFjord ehf. kt. 460606-1404. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun húsnæðis við Dalbraut 1 á Bíldudal fastanúmer 212-4818. Sótt er að efri hæð hússins og hluti neðri hæðar verði hótel. Erindinu fylgja teikningar með verknúmer 13-104 dagsett 10.4. 2013 unnið af Teiknistofunni A,V,J. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um leyfi þinglýsts eiganda eignarinnar.

          Málsnúmer 1304034

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Deiliskipulag efnislosunarsvæðis í Vatneyrarhlíð , Patreksfirði

          Þann 10. desember 2012 samþykkt bæjarstjórn Vesturbyggðar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi vegna urðunarsvæðis í Vatneyrarhlíðum á Patreksfirði. Umsagir bárust frá Vegagerðinni, Fornleifavernd ríkisins, Umhverfisstofnun, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða og Veðurstofunni. Búið er að verða við umsögnum umsagnaraðila. Tillagan var auglýst frá 1. janúar 2013 með athugasemdafresti til 26. febrúar 2013. Engar athugasemdir bárust. Hins vegar barst undirskriftalisti með bréfi frá 41 íbúa Patreksfjarðar við auglýsingu á skipulagslýsingunni vegna aðalskipulagsbreytingarinnar þar sem mótmælt er skilgreiningu á urðunarstað í Vatneyrarhlíðum. Þeim hefur verið svarað með bréfi. Haldin var kynning fyrir íbúa föstudaginn 7. desember 2012, kl. 18:10 í Félagsheimili Patreksfjarðar. Gerðar hafa verið þær breytingar á skilgreiningu svæðisins að það verði skilgreint sem efnislosunarsvæði og nefnist þá deiliskipulagið ” Deiliskipulag efnislosunarsvæðis í Vatneyrarhlíð, Patreksfirði“ Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

            Málsnúmer 1210087 5

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Deiliskipulag fóðurstöðvar við Naust í Fossfirði í Vesturbyggð

            Megin forsendur deiliskipulagsins eru að finna í nýsamþykktri breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna laxeldis, efnislosun og efnistaka, landnotkun í fjallshlíðum þéttbýla, iðnaðarsvæði á Bíldudal og Aðalstræti 100 og nágrenni. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 56.000 m2 iðnaðarlóð ásamt aðkomu fyrir fóðurstöð laxeldis. Gert er ráð fyrir 4 byggingarreitum á lóðinni, þ.e. byggingarreit fyrir allt að 80 m2 starfsmannahúsi, byggingarreit fyrir allt að 80 m2 véla- og verkstæðishús ásamt fóðursílóum, byggingarreit fyrir allt að180 m2 fóðurgeymslu og byggingarreit fyrir allt að 150 m2 naust.Húsin eru færanleg gámahús á púða, klædd með svörtu timbri og með mænisþaki klæddu grænmáluðu bárujárni. Mænishæð má vera allt að 4m frá jörðu. Viðeigandi ákvæði reglugerðar um hávaða 724/2008 verða uppfyllt. Lýsing athafnasvæðis verður hönnuð þannig að áhrif á umhverfi verði í lágmarki. Kvöð er um frjálsa umferð gangandi fólks meðfram strönd í fjöruborði. Leiðandi markmið við allar framkvæmdir skal vera að hús og lóð falli vel að umhverfi. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir skipulagið til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

              Málsnúmer 1304035 4

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              6. Umsókn um byggingarleyfi og skipulag Fit á Barðarströnd.

              Erindi frá Gísla Gunnari Marteinssýni kt. 250764-3329. Í erindinu er óskað eftir deiliskipulagi fyrir tveimur sumarhúsum á Holtsfit á Barðaströnd með landnúmer 139797 á reitum merktum með númerum 1 og 2 á teikningu. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 108,8 m2 sumarhúsi á reit 1. Erindinu fylgja teikningar unnar af Guðmundi Hanssyni byggingartæknifræðingi kt. 151263-3646 og Svavari M. Sigurjónssyni byggingartæknifræðingi kt.180867-3419. Skipulags- og byggingarnefnd gerir efnislegar athugasemdir á skipulaginu og samþykkir það til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslagslaga nr. 123/2010 eftir breytingar sem ræddar voru á fundinum. Nefndin samþykkir byggingarleyfi fyrir sumarhúsi á reit nr. 1 með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar skv. 5.11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

                Málsnúmer 1304036 4

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                7. Umsókn um lóð Hafnarteigur 1, Bíldudal

                Erindi frá Jóni Sigurði Bjarnasyni fyrir hönd Lás ehf. kt 490893-2379. Í erindinu er óskað eftir lóð að Hafnarteig 1 á Bíldudal undir allt að 500 m2 atvinnuhúsnæði. Lóðin er á staðfestu deiliskipulagi fyrir svæðið. Skipulags- og byggingarnefnd tekur vel í erindið en bendir á að verið er að skipuleggja iðnaðarsvæði innan Bíldudals sem gæti hentað starfseminni, nefndin frestar málinu og vísar því til hafnarstjórnar.

                  Málsnúmer 1302042 3

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  8. Deiliskipulag frístundabyggðar í Vesturbotni

                  Þann 19. september 2012 samþykkti bæjarstjórn Vesturbyggðar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar í Vesturbotni í Patreksfirði. Deiliskipulagið nær yfir hluta jarðarinnar Vesturbotn sem er í eigu Vesturbyggðar. Skipulagssvæðið er um 300 ha að stærð. Helsta markmið með gerð deiliskipulagsins er að bjóða upp á lóðir í fallegu umhverfi þar sem áhugasamir einstaklingar eða félagssamtök geta m.a. unnið að uppgræðslu og landbótum. Ennfremur verði lögð áhersla á að mynda heildstætt frístundahúsahverfi, sem fellur sem best að umhverfinu. Öll mannvirki, sumarbústaðir, lóðamörk og bílastæði verði eins lítið áberandi og frekast er kostur. Tillagan var auglýst frá 1. janúar 2013 með athugasemdafresti til 26. febrúar 2013. Umsagnir bárust frá fornleifavernd ríkisins, Veðurstofu, Umhverfisstofnun, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða og Vegagerðinni. Búið er að verða við umsögnum þeirra umsagnaraðila sem gáfu umsögn. Umsögn vantar frá Umhverfisstofnun. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna með fyrirvara um jákvæða umsögn Umhverfisstofnunar og felur byggingarfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

                    Málsnúmer 1205105 7

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:30