Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 6. apríl 2016 og hófst hann kl. 16:30
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir
Almenn erindi
1. Íbúaþing - ungmennaráð
Íbúaþing sem haldið verður á Patreksfirði 16. og 17. apríl næstkomandi kynnt fyrir Ungmennaráði. Ungmennaráð hvetur ungt fólk eindregið til að taka þátt í þinginu.
2. Rut Einarsdóttir æskulýðsfulltrúi Íslandi á þingi Evrópuráðs í Frakklandi í mars 2016.
Rut Einarsdóttir kom og kynnti fyrir Ungmennaráði þátttöku sína sem æskulýðsfulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðs í Frakklandi í mars 2016 og hvaða leiðir hægt er að fara til að efla sambandið við Evrópuráð. Hún sagði Ungmennaráðinu einnig frá dvöl sinni og reynslu í Japan þar sem hún hefur stundað nám síðastliðinn þrjú ár. Ungmennaráðið sagði Rut frá tilgangi ráðsins og hvað brennur á ungu fólki í Vesturbyggð.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30
Rúnar Örn Gíslason og Matthías Karl Guðmundsson boðuðu forföll