Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Álagning fast­eigna­gjalda 2022

Álagn­ingu fast­eigna­gjalda fyrir árið 2022 er lokið og eru álagn­ing­ar­seðlar nú aðgengi­legir á island.is undir „Mínum síðum“ ásamt öllum breyt­ing­ar­seðlum þar á eftir.


Skrifað: 1. febrúar 2022

Fréttir

Gjaldskrá og reglur um niðurfellingu fasteignagjalda fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er að finna hér neðst í fréttinni, ásamt reglum um styrkveitingu til félagasamtaka.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á innheimta@vesturbyggd.is eða í síma 450 2300. Meðal annars er hægt að:

  • Óska eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða ekki sendir í bréfpósti
  • Senda inn erindi vegna fasteignagjalda
  • Senda inn kærur vegna fasteignagjalda
  • Senda inn umsókn um styrkveitingu til félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum
  • Senda inn umsókn um lækkun fasteignaskatts fyrir elli- og örorkulífeyrisþega vegna fráfalls maka á árinu 2021

Kæru- og umsóknafrestur er til 15. mars 2022.

Fasteignagjöld sem eru yfir kr. 45.000 greiðast með 11 jöfnum greiðslum á mánaðar fresti, fyrsti gjalddagi er 1. febrúar. Fasteignagjöld kr. 45.000 og lægri eru innheimt með einum gjalddaga 1. febrúar. Fasteignagjöld verða innheimt í netbönkum.

Þeir sem þess óska geta lagt inn gjöld í einu lagi á bankareikning
0153-26-001800 kt. 510694-2369. Skýring: Fastanúmer eignar.
Vinsamlegast sendið kvittun á innheimta@vesturbyggd.is og kröfur verða felldar niður í kjölfarið.