Arnarlax - Svæðisstjóri óskast
Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi. Starfsmenn eru um það bil 110 talsins og er fyrirtækið með starfsemi á Vestfjörðum og í Hafnarfirði. Við erum samþætt fyrirtæki og störfum á öllum stigum virðiskeðjunnar með okkar eigin seiðaframleiðslu, sjóeldi, sláturhús og söludeild. Arnarlax framleiddi 11.000 tonn af laxi á árinu 2020 og er að auka magnið frá ári til árs. Okkar framtíðarsýn er að framleiða sjálfbæran íslenskan lax frá Vestfjörðum.
Skrifað: 25. febrúar 2021
Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af báðum kynjum og ýmsum þjóðernum og nú viljum við bæta enn frekar í liðsheildina okkar. Vegna aukinna umsvifa óskum við nú eftir að ráða til okkar liðsauka í verkstjórateymi okkar í vaktavinnu í laxasláturhús okkar á Bíldudal. Verkstjórateymið samanstendur af sex manns sem heyrir undir framleiðslulstjóra fyrirtæksins, verkstjóri hjá Arnarlaxi þarf að geta gengið í flest störf eftir þörfum.
Ferilskrá og listi yfir meðmælendur óskast send með umsókn.
Hæfniskröfur
- Reynsla á stjórnun kostur
- Skipstjórnar- og/eða vélstjórnarréttindi er kostur
- Áhugi á fiskeldi og velferð fiska
- Skipulags- og samskiptahæfni
- Frumkvæði og metnaður í starfi
Helstu verkefni
- Ýmis verkefni á sjó, þar með talið daglegt eftirlit á sjókvíum, fóðurprömmum, tækjabúnaði báta og fóðurpramma og önnur tilfallandi verkefni við sjódeild fyrirtækisins
- Umsækjendur þurfa að geta verið sveigjanlegir varðandi skipulag vakta og vinnutíma
- Önnur tilfallandi verkefni
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2021
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Iðu Marsibil Jónsdóttur, með tölvupósti: ida@arnarlax.is