Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Auglýsing um styrki

Auglýsing um styrki  vegna náms­kostn­aðar eða verk­færa- og tækja­kaupa fatlaðs fólks.


Skrifað: 26. september 2019

Auglýsingar

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um  styrki skv. 25. grein laga nr. 37/2018  um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Byggðasamlaginu er heimilt að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.  Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk  til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða  endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 24. október 2019 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu. Rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér að neðan.