Bíldudalsskóli - Skólastjóri
Sveitarfélagið Vesturbyggð auglýsir starf skólastjóra Bíldudalsskóla laust til umsóknar. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna sýn á rekstur skóla og er tilbúinn til að leiða Bíldudalsskóla í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar.
Skrifað: 25. febrúar 2021
Í Bíldudalsskóla er samrekin grunnskóli og leikskólinn Tjarnarbrekka. Skólastjóri hefur einnig umsjón með mötuneyti skólanns. Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2021.
Meginverkefni
- Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
- Faglegur leiðtogi og mótar framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar, aðalnámskrá leik og grunnskóla og lögum um leik og grunnskóla
- Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu og þróunar
- Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
- Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins í Vesturbyggð
- Hefur umsjón með daglegu starfi lengdrar viðveru á Bíldudal
Hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
- Færni og reynsla af stjórnun grunnskóla er æskileg
- Færni og reynsla af starfsmannahaldi skilyrði
- Hæfni og reynsla í stefnumótun, áætlanagerð og þróun skólastarfs æskileg
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og enskukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2021
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands (SÍ). Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjölskyldusviðs Vesturbyggða. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Vesturbyggðar. Sveitarfélagið Vesturbyggð aðstoðar við búslóðaflutning og við að útvega húsnæði í sveitarfélaginu.
Umsókn skal berast á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Skólastjóri Bíldudalsskóla.“ Með umsókninni skal fylgja kynningarbréf um störf, menntun og stjórnunarreynslu umsækjenda, hugmyndir um rekstur skóla og hvernig umsækjandi sér starfsemi Bíldudalsskóla fyrir sér undir sinni stjórn. Einnig skal tilgreina þau verkefni sem umsækjandi hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni til að sinna starfi skólastjóra.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur er áskilinn til að hætta við ráðningu og/eða auglýsa stöðuna að nýju.