Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Birting Áfanga­staða­áætl­unar

Áfanga­staða­áætlun Vest­fjarða hefur verið birt form­lega. Mark­aðs­stofa Vest­fjarða hefur unnið að skýrsl­unni undan­farin misseri og hefur skýrslan nú form­lega farið fyrir sveita­fé­lögin á svæðinu.


Skrifað: 29. október 2018

Fréttir

Áfangastaðaáætlun Vestfjarða er heildstæð áætlun sem hefur ferðaþjónustu sem meginpunkt. Markmið hennar er að stuðla að ábyrgri ferðaþjónustu sem skilar sem mestu til samfélaga, um leið og mögulegum neikvæðum áhrifum er haldið í lágmarki. Í áætluninni er horft á ferðaþjónustu út frá víðu sjónarhorni og tekið tillit til margra ólíkra aðila sem eiga hagsmuna að gæta í þróun áfangastaðarins. Áætlunin tekur tillit til gesta, íbúa, fyrirtækja og umhverfis og reynir að skapa jafnvægi. Hún gerir íbúum kleift að ákveða hvernig þeir vilja að ferðaþjónusta þróist með tilliti til áhrifa á efnahag og samfélag þeirra og hvaða skref skuli taka í átt að því marki.

Í Áfangastaðaáætlun Vestfjarða var unnin greining á stöðu ferðaþjónustunnar á svæðinu þar sem farið er yfir helstu þætti sem tengjast henni á beinan eða óbeinan hátt. Út frá greiningunni er farið í að móta framtíðarsýn og markmið, síðan var unnin aðgerðaáætlun út frá þeim. Í aðgerðaáætluninni var sett fram forgangsröðun verkefna, en farið var þá leið að fá aðstoð allra þeirra sem vildu leggja hönd á plóg við forgangsröðunina. Haldnir voru opnir fundir á svæðunum og sveitafélögin fengin til að setja fram sína skoðun og forgangsröðun.

Á næstunni verða síðan niðurstöður skýrslunnar kynntar betur, sem og framhald verkefnisins.

Ef einhverjir vilja koma á framfæri spurningum eða athugasemdum þá er vinsamlegast bent á að hafa samband við verkefnastjóra verkefnisins Magneu Garðarsdóttir á magnea@vestfirdir.is