Bókasafnið á Patreksfirði opnar upptökuver
Lionsklúbbur Patreksfjarðar afhenti bókasafninu tækjabúnað fyrir upptökuver að gjöf. Upptökuverið er staðsett í rými tónlistarskólans við hliðina á bókasafninu og er til afnota fyrir alla sem eiga bókasafnsskírteini í gildi á bókasafni Patreksfjarðar eða bókasafni Bíldudals.
Skrifað: 30. mars 2019
Undanfarið hafa nokkrir nemendur í 8.–10. bekk Patreksskóla unnið að gerð hlaðvarpsþátta í upptökuverinu og veittu þau gjöfinni móttöku ásamt forstöðumanni bókasafnsins.
Upptökuverið hentar fyrir upptökur á hlaðvarpsþáttum, skólaverkefnum, munnlegum heimildum og öðru talmáli. Á bókasafninu er einnig í boði að leigja upptökutæki til að taka með úr húsi og er hægt að vinna efni tekið upp á það tæki í upptökuverinu.
Þeim sem vilja nýta sér aðstöðuna er bent á að hafa samband við bókasafnið á Patreksfirði og bóka tíma.
Forstöðumaður bókasafna Vesturbyggðar
Birta Ósmann Þórhallsdóttir bokpatro@vesturbyggd.is / 450 2374