Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Deild­ar­stjóri leik­skóla­deildar 5 ára barna

Starfs­svið

100% staða deild­ar­stjóra leik­skóla­deild­ar­innar Klif í Patreks­skóla. Leik­skóla­deildin er fyrir 5 ára nemendur.


Skrifað: 5. apríl 2022

Starfsauglýsingar

Meginverkefni og ábyrgð

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar
  • Sér um daglegan rekstur leikskóladeildar í samráði við skólastjóra
  • Stjórnar faglegu starfi, gerir áætlanir og stundaskrá fyrir starfsárið og stjórnar öðrum starfsmönnum deildarinnar á hverjum degi
  • Situr starfsmannafundi/kennarafundi og tekur þátt í nefndarstarfi ef þess er óskað
  • Tekur þátt í samstarfi við grunnskólann og aðrar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskóladeildinni
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra
  • Skipuleggur forgangsröðun verkefna og langtímamarkmið
  • Skipuleggur ásamt skólastjóra starfsumhverfi, tæki og tól sem deildin þarfnast hverju sinni og sér um innkaup
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra / forráðamenn barnanna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni á leikskólastigi
  • Færni og reynsla af deildarstjórn á leiksskóla er æskileg
  • Hæfni og reynsla í stefnumótun, áætlanagerð og þróun leikskólastarfs æskileg
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri og umsóknir sendist á asdissnot@vesturbyggd.is