Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Deildarstjóri stoðþjónustu í Patreksskóla
Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri og umsóknir sendist á asdissnot@vesturbyggd.is
Skrifað: 5. apríl 2022
Starfssvið
- 100% starf kennara með sérhæfingu í sérkennslu
- Skipuleggja og stýra fyrirkomulagi stoðþjónustu
- Kennsla nemenda með sérþarfir
- Skipuleggja framkvæmd kennslu barna með íslensku sem annað mál
- Vera í forystu um gerð einstaklingsnámsskráa og vera ráðgefandi aðili við gerð þeirra
- Vera kennurum skólans faglegur ráðgjafi um skipulag kennslu
- Vera öðrum kennurum skólans innan handar varðandi skipulag kennslu nemenda með sérþarfir
- Leiðbeina stuðningsfulltrúum í samstarfi við umsjónarkennara
- Gera stundatöflur stuðningsfulltrúa í samráði við skólastjóra og kennara
- Stýra fundum svæðisbundins farsældarráðs og vera í samskiptum við málastjóra
- Aðstoða umsjónarkennara til að vera í samstarfi við heimili, skóla og stoðþjónustu vegna nemenda með sérþarfir
- Annast samskipti við sérfræðinga skólateymis Patreksskóla í samráði við skólastjóra eða aðra aðila stoðþjónustunnar
- Halda utan um niðurstöður greininga/skimana í samráði við skólastjóra, skipuleggja og fylgja eftir inngripum í kjölfar skimana
- Hafa eftirfylgd með sértækum verkefnum innan stoðþjónustunnar sem tengjast nemendum
- Tengiliður nemenda samkvæmt farsældarlögum
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (s.s. þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun)
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sérkennslu
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022