Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Deild­ar­stjóri - Tjarn­ar­brekka

Deild­ar­stjóri óskast við leik­skólann Tjarn­ar­brekku, Bíldudal.

Viltu vera hluti af metn­að­ar­fullum starfs­manna­hópi þar sem skap­andi og fjöl­breyttir kennslu­hættir eru í fyrir­rúmi? Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli með tvær starfs­stöðvar á Bíldudal, Vest­ur­byggð; Bíldu­dals­skóla og leik­skólann Tjarn­ar­brekku.

Einkunn­arorð skólans eru: samskipti – samvinna – sköpun


Skrifað: 3. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Leikskólinn Tjarnarbrekka leitar að deildarstjóra frá og með 1. ágúst 2023. Leikskólakennara sem hefur áhuga á að taka þátt í gróskumiklu leikskólastarfi þar sem faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina og grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu.

Á Tjarnarbrekku lítum við á leikinn sem náms- og þroskaleið barnsins svo við gefum honum góðan tíma og nægt rými til að þróast. Við nýtum okkur Lubba til að efla málþroskann og Vináttu/Blæ til að efla félagsþroskann og er þekking á þeim kostur í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni og unnið sé eftir skólanámskrá
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og til leikskólastjóra
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2023

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Bíldudalsskóli skólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333