Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Eldis­bændur - Seiða­fram­leiðsla

Vegna vaxandi umsvifa leitar Arnarlax nú eftir metn­að­ar­fullum og áhuga­sömum eldis­bændum í seiða­fram­leiðslu fyrir­tæk­isins. Seiða­eld­is­stöðvar okkar eru í Tálkna­firði, Þorláks­höfn og í Grím­sensi- og Grafn­inhs­hreppi.

Verk­efnin eru fjöl­breytt og krefj­andi.


Skrifað: 27. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu lóðrétt samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar á sinni hendi, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu.

Arnarlax teymið samanstendur nú af um 200 dyggu og hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim.

Við erum með starfsemi í 5 mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði og Reykjavík og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Hallkelshólum. Arnarlax framleiddi 16.000 tonn af laxi árið 2022 og gerir ráð fyrir miklum vexti á komandi árum.

Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun, fóðrun og eftirlit með laxinum okkar
  • Skráning, skjölun, sýnataka og vatnsgreining
  • Ýmis verkefni tengd bólusetningu, flokkun og afhendingu
  • Aðstoð við skipulagningu, samhæfingu og eftirfylgni með verkþáttum
  • Eftirlit og skoðun á búnaði og aðstöðu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og árangursmiðað hugarfar
  • Hefur gaman af krefjandi verkefnum
  • Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði
  • Lágmarks aldur er 18 ára

Arnarlax býður

  • Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
  • Flutningastyrk ef við á
  • Góð tækifæri til að þróast, bæði persónulega og faglega
  • Fjölbreytt verkefni, námskeið og þjálfun
  • Stuðning til náms á því sviði sem starfið tekur til
  • Samkeppnishæf laun

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2023

Ef þú uppfyllir ofangreind skilyrði og hefur áhuga á að ganga til liðs við kraftmikið teymi okkar, vinsamlegast sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi.

Okkur hlakkar til að heyra frá þér!

Umsóknarfrestur er til og með 14 maí 2023.

Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri Arnarlax, Karen Ósk Pétursdóttir, karen@arnarlax.is.