Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Eldis­bændur - Sjódeild

Arnarlax leitar að metn­að­ar­fullum og áhuga­sömum eldis­bændum í sjódeild fyrir­tæk­isins. Verk­efnin eru fjöl­breytt og krefj­andi. Unnið er á 7 daga vöktum 12 tíma á dag, og 7 daga frí. Vakta­skipti eru á þriðju­dögum


Skrifað: 27. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu lóðrétt samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar á sinni hendi, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu.

Arnarlax teymið samanstendur nú af um 200 dyggu og hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim.

Við erum með starfsemi í 5 mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði og Reykjavík og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Hallkelshólum. Arnarlax framleiddi 16.000 tonn af laxi árið 2022 og gerir ráð fyrir miklum vexti á komandi árum.

Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun á laxinum okkar á sjó
  • Eftirlit með framleiðslu í eldiskvíum ásamt viðhaldi og uppsetningu á eldisbúnaði
  • Þrif og aðstoð við viðhald á þjónustubátum og fóður prömmu
  • Flutningur fóðurs á fóðurpramma
  • Móttaka fóðurs á fóðurprömmum ásamt móttöku í landi í fóðurskemmur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og árangursmiðað hugarfar
  • Hefur gaman af krefjandi verkefnum
  • Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Skipstjórnarréttindi 15+ m er kostur
  • Vélstjóraréttindi 15+ m er kostur
  • Íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð
  • Lágmarks aldur er 18 ára

Arnarlax býður

  • Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
  • Flutningastyrk ef við á
  • Frían aðgang að íþróttamannvirkjum á svæðinu
  • Góð tækifæri til að þróast, bæði persónulega og faglega
  • Fjölbreytt verkefni, námskeið og þjálfun
  • Stuðning til náms á því sviði sem starfið tekur til
  • Samkeppnishæf laun

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2023

Ef þú uppfyllir ofangreind skilyrði og hefur áhuga á að ganga til liðs við kraftmikið teymi okkar, vinsamlegast sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi.

Okkur hlakkar til að heyra frá þér!

Umsóknarfrestur er til og með 14 maí 2023.

Nánari upplýsingar veitir Karen Ósk Pétursdóttir, karen@arnarlax.is, mannauðsstjóri.