Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Fræðsla um eldvarnir skilar árangri

Eldvarna­átak Lands­sam­bands slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna fer fram um allt land um þessar mundir eins og mörg undan­farin ár.


Skrifað: 20. desember 2018

Slökkviliðsmenn heimsækja þá börnin í 3. bekk grunnskólanna og fræða þau um eldvarnir. Börnin fá með sér heim handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins og söguna af Brennu-Vargi og Loga og Glóð. Þeim gefst jafnframt kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni en heppnir þátttakendur í henni fá jafnan afhent vegleg verðlaun á 112-deginum, 11. febrúar.

Í Vesturbyggð og Tálknafirði hefur slökkviliðsstjóri sinnt þessu verkefni og rætt við krakkana.  Ásamt því að fara í 3. bekk þá er farið í alla bekki í öllum skólum, meðtalið leikskóla og framhaldsdeild.  Þetta hefur gefist vel og krakkarnir eru duglegir við að fræða foreldrana þegar heim er komið um eldvarnir.  Þannig höfum við fengið aðstoðarmenn slökkviliðs fyrir hver jól á fjölmörg heimili sem passa meðal annars upp á að skipta um batterí í reykskynjurum.

Landssambandið hefur um langt árabil lagt áherslu á forvarnastarf og hefur haldið Eldvarnaátakinu úti með dyggum stuðningi fjölmargra aðila í rúma tvo áratugi. Það er því gleðilegt að geta greint frá því að samkvæmt rannsóknum sem Gallup hefur gert fyrir landssambandið og Eldvarnabandalagið skilar fræðsla af þessu tagi greinilegum árangri. Gallup hefur kannað ástand eldvarna á heimilum landsmanna á tveggja ára fresti undanfarin tíu ár og þróunin er ótvíræð; heimilin auka eldvarnir sínar jafnt og þétt. Æ færri hafa engan eða bara einn reykskynjara en að sama skapi fjölgar þeim til muna sem hafa þrjá eða fleiri.

Mun algengara er nú en fyrir tíu árum að slökkvitæki og eldvarnateppi séu á heimilum. Í könnun sem gerð var nú í haust kom fram að helmingur heimila er með allt í senn reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi en það er einmitt það sem okkar menn mæla með. Við eigum verk að vinna en þessar niðurstöður hvetja okkur sannarlega til dáða.

Sýnum aðgát á aðventunni

Fræðsla um eldvarnir á alltaf við en þó aldrei eins og nú í byrjun aðventu. Um leið og við hvetjum fólk til að hafa nauðsynlegan eldvarnabúnað á heimilinu leggjum við ekki síður áherslu á mikilvægi þess að fara varlega í daglegri umgengni á heimilinu. Á næstu vikum ríður sérstaklega á að fara varlega með opinn eld, kertaljós og þvíumlíkt. Og munið að slaka ekki á klónni þótt jólahátíðinni ljúki og nýtt ár gangi í garð því reynslan sýnir að eldsvoðar á heimilum eru ekki síður algengir á fyrstu vikum ársins en á aðventu og um jól.

Gleðilega hátíð!

 

Davíð Rúnar Gunnarsson

Slökkviliðsstjóri í Vesturbyggð og Tálknafirði