Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Frétta­maður RÚV á Vest­ur­landi/Vest­fjörðum

Frétta­stofa RÚV leitar að öflugum frétta­manni á Vest­ur­landi/Vest­fjörðum í 100% starf. Starfið felst í að afla frétta og miðla þeim, í útvarpi, sjón­varpi og á RÚV.is.


Skrifað: 27. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Starfið getur verið án staðsetningar eða á starfsstöð RÚV í Borgarnesi. Verkefnin eru unnin í samstarfi við aðra fréttamenn RÚV á landsbyggðinni og í Reykjavík. Á RÚV starfar fjölbreyttur hópur fréttafólks með mikla reynslu og þekkingu, í kraftmiklu og skapandi umhverfi.

Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum fréttamanni sem er vel ritfær og með góða framsögn

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Öflun og vinnsla frétta
  • Miðlun frétta á vef, í útvarpi og sjónvarp

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af blaða- og fréttamennsku æskileg
  • Gott vald á íslenskri tungu og góð tungumálaþekking
  • Færni til að tileinka sér nýja tækni og tölvuforrit
  • Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna hratt og vel
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð þekking á samfélaginu á Vesturlandi og Vestfjörðum

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2023

Nánari upplýsingar veita Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri, heidar.orn.sigurfinnsson@ruv.is og Birta Björnsdóttir, varafréttastjóri, birta.bjornsdottir@ruv.is.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um starfið, óháð kyni, uppruna, fötlun eða starfsgetu.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað rafrænt.