Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Patreks­firði - sumaraf­leysing

Við óskum eftir að ráða hjúkr­un­ar­fræðing í 70 til 100% starf á Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða á Patreks­firði. Um sumaraf­leys­ingu er að ræða.


Skrifað: 25. febrúar 2021

Starfsauglýsingar

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum, sem meðal annars sást í að stofnunin var hástökkvari stórra stofnana í könnun um stofnun ársins árið 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð

Störf hjúkrunarfræðinga á Patreksfirði eru fjölbreytt og vinna þeir með breiðum skjólstæðingahópi. Hjúkrunarfræðingar vinna saman í öflugu teymi og sinna m.a. heilsugæslu, ungbarnavernd, skólahjúkrun, heimahjúkrun og legudeild.

Unnið er á dagvöktum. Þess fyrir utan skipta hjúkrunarfræðingar með sér bakvöktum.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja starfa við og öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og í boði eru einnig afnot af íbúð á sanngjörnu verði.

Starfshlutfall er 70 - 100%

    Hæfnikröfur

    • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
    • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
    • Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
    • Faglegur metnaður
    • Ökuréttindi eru nauðsynleg

    Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2021

    Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

    Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

    Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

    Nánari upplýsingar veitir Gerður Rán Freysdóttir – gerdur@hvest.is – 450 2000