Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Hótel­stjóri - Foss­hótel Vest­firðir

Hótel­stjóri skipu­leggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins þ.á.m. gesta­mót­töku, bókunum, veit­inga­stað, þrifum, viðhaldi fast­eignar og mannauðs­málum.


Skrifað: 31. janúar 2023

Starfsauglýsingar

Hótelstjóri vinnur náið með aðalskrifstofu í sölu og markaðsmálum og sér til þess að hótelið uppfylli gæðastaðla og rekstraráætlun fyrirtækisins. Hótelstjóri leiðir stóran hóp starfsmanna og ber ábyrgð á hagkvæmum rekstri með velferð og ánægju starfsmanna og gesta að leiðarljósi.

Starfstími er 1. apríl til 15. október

Hæfniskröfur

  • Árangursrík reynsla sem stjórnandi í hótel og/eða veitingarekstri
  • Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu kostur
  • Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
  • Fjármálalæsi og greiningarhæfni
  • Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Cenium, Navison og H3 kostur

Ábyrgð

  • Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna
  • Fjármál og rekstrargreiningar
  • Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun
  • Verkefna- og ferlastýring
  • Rekstur og viðhald fasteignar

Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2023

Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni

Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:

Fagmennska – Heiðarleiki – Samvinna – Kjarkur

Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. 

Umsókn og frekari upplýsingar á https://alfred.is/starf/hotelstjori-fosshotel-vestfirdir-1