Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Innviða­greining fyrir atvinnulíf í Vest­ur­byggð

Á fundi bæjar­stjórnar þann 12. desember sl. voru kynnt drög að skýrslu um innvið­a­upp­bygg­ingu fyrir atvinnulíf í Vest­ur­byggð.  Efla verk­fræði­stofa hefur unnið að skýrsl­unni í samstarfi við sveit­ar­fé­lagið.


Skrifað: 8. janúar 2019

Fréttir

Undanfarin tvö ár hefur Vesturbyggð unnið að verkefni sem miðar að því að kortleggja stöðu atvinnureksturs í sveitarfélaginu og hvernig hægt er til framtíðar að skapa aðstöðu fyrir þau fyrirtæki sem hafa hug á að efla sinn rekstur enn frekar innan sveitarfélagsins auk aðstöðusköpunar fyrir ný fyrirtæki. Með auknu fiskeldi og aukin umsvif í öðrum atvinnugreinum hefur orðið viðsnúningur í atvinnumálum í Vesturbyggð. Þetta hefur einnig gert það að verkum að sveitarfélagið hefur fundið fyrir vaxtaverkjum m.t.t innviða eins og á hafnarsvæðum og á fasteignamarkaði svo dæmi séu nefnd.

Verkefnið var fyrst kynnt á íbúafundi á Bíldudal þann 19. september 2017 og voru í nóvember 2017 haldnir fundir með stærri fyrirtækjum á svæðinu, einnig voru haldnir opnir fundir með öðrum hagsmunaaðilum.

Nú liggja fyrir drög að  skýrslunnar þar sem farið er yfir niðurstöður samráðs við atvinnulífið ásamt greiningu innviða og samfélags. Það skal tekið fram að skjalið er ennþá á vinnslustigi og eftir á að klára lokakafla skýrslunar þar sem ólíkum sviðsmyndum verður stillt upp.

Íbúum og fyrirtækjum er gefin kostur á að senda inn athugasemdir og/eða ábendingar við skýrsluna til 20. janúar nk. Hægt er að senda athugasemdir annars vegar á netfangið gerdur@vesturbyggð.is eða á netfangið eva.dis.thordardottir@efla.is