Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Íþrótta­kennsla í Patreks­skóla

100% staða kennara með sérhæfða hæfni í skólaí­þróttum.


Skrifað: 18. mars 2022

Starfsauglýsingar

Starfssvið

  • Íþróttakennari fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Hefur yfirsýn með skólasókn nemenda í íþróttum
  • Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennara og annarra starfsmanna innan skóla og milli skóla
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár og ýmsum áætlunum innan skólans

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta
  • Hefur ánægju af að starfa með börnum og unglingum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla, s.s. Uppeldi til ábyrgðar o.fl
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Getur starfað með íþróttakennurum annarra skóla í teymisvinnu
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á að vinna með börnum og unglingum

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2022

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, netfang: asdissnot@vesturbyggd.is og í síma 863 0465. Umsóknir skulu berast á sama netfang.