Hoppa yfir valmynd

Kærkomin gjöf frá Véla­verk­stæðinu

Í hjarta Patreks­fjarðar, við Patreks­skóla, hefur risið kastali. Leik­k­astali sem er gjöf Véla­verk­stæðis Patreks­fjarðar í tilefni af 10 ára afmælis fyrir­tæk­isins.


Skrifað: 8. júní 2023

Fréttir

Auk hans gaf fyrirtækið einnig ýmis smærri leiktæki sem sett voru upp á leikskólalóð Arakletts og útibekki fyrir báðar lóðir. Leiktækin auka fjölbreytni þeirra leiktækja sem fyrir eru og mun gjöfin gleðja yngstu kynslóðina okkar og halda áfram að gleðja um ókomna tíð.

Ég þakka Gunnari Sean, eiganda Vélaverkstæðisins, kærlega fyrir góða afmælisgjöf sem er kærkomin viðbót á grunn- og leikskólalóðirnar á Patreksfirði.

Undanfarnar vikur höfum við orðið vitni að mörgum samfélagslegum verkefnum sem eru borin uppi af sjálfboðaliðum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu. Skjaldborgarhátíðin, Sjómannadagshátíðin og leiktækin frá Vélaverkstæðinu er dæmi um það mikilvæga hlutverk sem einstaklingar og fyrirtæki spila í því að styðja og styrkja samfélagið sem við erum öll hluti af. Vil ég nota tækifærið og þakka fyrir það sömuleiðis, þetta er menning sem mikilvægt er að halda í.

Þórdís Sif Sigurðardóttir og Gunnar Sean takast í hendur fyrir framan umræddan kastala.
Takk fyrir gjöfina
Þórdís Sif Sigurðardóttir og Gunnar Sean takast í hendur fyrir framan umræddan kastala.