Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Kenn­arar í Patreks­skóla

Vilt þú vera hluti af metn­að­ar­fullum starfs­manna­hópi þar sem skap­andi og fjöl­breyttir kennslu­hættir eru hafðir að leið­ar­ljósi? Í Patreks­skóla er grósku­mikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi.


Skrifað: 18. mars 2022

Starfsauglýsingar

Starfssvið

  • 100% starf kennara á yngsta stigi
  • 100% starf kennara á miðstigi
  • 100% starf kennara á unglingastigi með sérhæfða hæfni í raungreinum og stærðfræði
  • 70-100% starf kennara með sérhæfða hæfni í list- og verkgreinum

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2022

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, netfang: asdissnot@vesturbyggd.is og í síma 863 0465. Umsóknir skulu berast á sama netfang.