Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Kennari á unglinga­stigi í Patreks­skóla

Patreks­skóli er heild­stæður 10 bekkja grunn­skóli með 100 nemendum ásamt leik­skóla­deild. Þar starfar öflugur og metn­að­ar­fullur hópur fólks sem vinnur að vellíðan nemenda og að hver fái að stunda nám á eigin forsendum.


Skrifað: 26. maí 2021

Starfsauglýsingar

Patreksskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Fjölbreyttir kennsluhættir og einstaklingsmiðað nám og vinna með styrkleika nemenda er í fyrirrúmi. 

Starfssvið

Umsjónarkennsla á unglingastigi með áherslu á íslensku, stærðfræði, náttúru- og samfélagsgreina.

    Menntunar og hæfniskröfur

    • Leyfisbréf til kennslu með sérhæfða hæfni á grunnskólastigi
    • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
    • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
    • Faglegur metnaður
    • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
    • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
    • Reynsla af teymisvinnu kostur

    Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2021

    Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og við að útvega húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. 

    Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

    Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri. Umsóknir skulu berast á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is