Kennari við Patreksskóla - list og verkgreinar
Viltu þú vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir að leiðarljósi? Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.
Skrifað: 5. apríl 2022
Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri og umsóknir sendist á asdissnot@vesturbyggd.is
Starfssvið
70-100% starf kennara með sérhæfingu í list- og verkgreinum.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.