Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Land­varsla á sunn­an­verðum Vest­fjörðum

Umhverf­is­stofnun auglýsir eftir land­vörðum sumarið 2019 á sunn­an­verða Vest­firði. Aðsetur land­varðar verður í eða í grennd við vernd­ar­svæðin en megin starfs­svæði eru friðlandið í Vatns­firði og nátt­úru­vættin Surt­ar­brandsgil og Dynj­andi.


Skrifað: 6. febrúar 2019

Starfsauglýsingar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Störf landvarða felast í að gæta þess að ákvæði náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða séu virt. Þeir koma á framfæri upplýsingum og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, viðhald innviða og halda við merktum gönguleiðum.
  • Landverðir þurfa að vera viðbúnir ef slys ber að höndum og er gerð krafa um að þeir sem ráðnir verða til starfa sæki skyndihjálparnámskeið eða hafi gild skyndihjálparréttindi. Boðið verður upp á skyndihjálparnámskeið fyrir landverði í vor.

Hæfnikröfur

Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið námskeiði í landvörslu eða hafi lokið öðru námi sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi auk þess að búa yfir lipurð í mannlegum samskiptum.
Að öðru leyti verða eftirfarandi viðmið um þekkingu, reynslu og hæfni höfð að leiðarljósi við val á starfsfólki:

  • Þekking á starfssvæði
  • Reynsla af landvörslustörfum
  • Tungumálakunnátta: Íslenska, enska, Norðurlandamál, önnur tungumál
  • Gild ökuréttindi
  • Aðrir þættir s.s.: Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavarsla, björgunarsveitarstörf og leiðsöguréttindi

Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2019

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hafa gert.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%

Umhverfisstofnun
Svið náttúru, hafs og vatns. Teymi náttúruverndar norður
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík