Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Laus störf við leik­skólann á Patreks­firði

Leitað er að sérskennslu­stjóra, deild­ar­stjóra og leik­skóla­kennara til starfa á Arakletti á Patreks­firði.

Við óskum eftir sérkennslu­stjóra frá 1. mars næst­kom­andi. Umsókn­ar­frestur til 31. janúar 2019. Óskum enn fremur eftir að ráða deild­ar­stjóra og leik­skóla­kennara til starfa hjá okkur. Umsókn­ar­frestur er til 1. janúar 2019.


Skrifað: 14. desember 2018

Starfsauglýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga.

Araklettur er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá 14 mánaða – 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir „Lífsmenntarstefnunni“ (Living Values Education). Virðing, traust og gleði eru aðaláhersluþættir leikskólans. Við njótum sérfræðiþjónustu frá TRÖPPU. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu okkar.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólasérkennaramenntun, leikskólakennaramenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Færni í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.

Vakin er athygli á því að ef við náum ekki að ráða leikskólasérkennara og leikskólakenna kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 450 2343 og 833 8343. Umsóknir berist til leikskólastjóra í netpósti.

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342