Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

List- og verk­greina­kennari - Patreks­skóli

Patreks­skóli leitar að metn­að­ar­fullum, sjálf­stæðum og dríf­andi starfs­manni með mikla þekk­ingu og áhuga á skóla­starfi. Um er að ræða 100% starf.


Skrifað: 11. maí 2023

Starfsauglýsingar

Viltu þú vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir að leiðarljósi? Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.

Starfssvið

  • 100% staða kennara með sérhæfingu í list- og verkgreinum

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í list og verkgreinum
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi á skapandi hátt
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2023

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsókn sendist á asdissnot@vesturbyggd.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásdís Snót Guðmundsdóttir, í síma 863-0465, netfang: asdissnot@vesturbyggd.is.