Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Lýðheilsu­göngur Ferða­fé­lags Íslands í sept­ember

Sept­ember er lýðheilsu­göngu­mán­uður Ferða­fé­lags Íslands líkt og undan­farin ár en gengið verður alla miðviku­daga í sept­ember. Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarð­ar­hreppur lætur ekki sitt eftir liggja og býður upp á glæsi­lega dagskrá. Allir eiga að finna göngu við sitt hæfi og eru íbúar einatt hvattir til að tengjast fólki, náttúru og sínu innra sjálfi með þátt­töku sinni.


Skrifað: 27. ágúst 2019

Tilgangur lýðheilsuganganna er að hvetja almenning til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu og lífsgæði. Ferðafélag Íslands mun halda utan um alla dagskrá um allt land á heimasíðu sinni og inni á Fésbókinni.

4. september – Gengið verður að Stöpum í Tálknafirði. Gengið verður í fylgd með UMFT og ætti gangan að taka um 90 mínútur. Lagt verður af stað frá Sellátrum klukkan 18:00.

11. september – Gengið verður upp á Brellur í Patreksfirði. Gengið verður í fylgd Margrétar Brynjólfsdóttur og ætti gangan að taka um 120 mínútur. Lagt verður af stað efst úr Sigtúni klukkan 18:00.

18. september – Smalaganga með Ásgeiri bónda á Innri-Múla. Fé verður rekið úr Hagafitinni þennan dag og ætti að taka um 120mínútur. Lagt verður af stað frá Innri-Múla klukkan 17:00.

25. september – Gengið verður upp að Hnjúksvatni í Bíldudal. Gengið verður í fylgd Iðu Marsibil Jónsdóttur og ætti gangan að taka um 90 mínútur. Lagt verður af stað frá gömlu rafstöðinni í botni Bíldudals klukkan 18:00.