Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 6 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Ísland - Argentína með forseta Íslands!

Forsetinn verður á Þjóð­hátíð á Hrafns­eyri 16. júní (ekki 17.) og horfir þar á leikinn með öðrum þjóð­há­tíð­ar­gestum. Allir eru hjart­an­lega velkomnir.


Skrifað: 14. júní 2018

Auglýsingar

Hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardagsins á Hrafnseyri verða með óvenjulegu og spennandi sniði að þessu sinni. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson tekur þátt í þjóðhátíðardagskránni á Hrafnseyri, heldur hátíðarræðu og fylgist með leik Íslands og Argentínu í stóru hátíðartjaldi ásamt gestum.

Þjóðhátíðardagskráin á Hrafnseyri, sem venjulega fer fram á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar þann 17. júní, er nú færð fram um einn dag til laugardagsins 16. júní (sjá dagskrá á www.hrafnseyri.is ). Hátíðarhöldin hefjast kl. 11:00 um morguninn með guðþjónustu. Að henni lokinni mun forseti Íslands. herra Guðni Th. Jóhannesson flytja hátíðarræðu. Á eftir ræðu forseta Íslands, verður frumflutt tónverkið „Blakta“ eftir ísfirska tónskáldið Halldór Smárason. Síðan mun sr. Geir Waage í Reykholti segja frá æskuminningum sínum frá Hrafnseyri.

Eins og kunnugt er fer fyrsti leikur Íslands í heimsmeistarakeppninni fram þennan dag og hefst hann kl. 13:00. Komið verður upp glæsilegu hátíðartjaldi á Hrafnseyri ásamt stórum skjám og góðri aðstöðu þar sem forseti og gestir fylgjast með leiknum.

Dagskránni lýkur svo með útskriftarhátíð nemenda frá Háskólasetri Vestfjarða. Súpa og kaffiveitingar eru til sölu á meðan hátíð stendur. Allir hjartanlega velkomnir og eru Vestfirðingar og aðrir hvattir til þess að mæta.

Hrafnseyri