Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Málþing um orkumál á Vest­fjörðum

Málþing um orkumál á Vest­fjörðum verður haldið í Edin­borg­ar­húsinu á Ísafirði, miðviku­daginn 6. apríl kl. 10:30 – 15:00.


Skrifað: 31. mars 2022

Auglýsingar

Starfshópur umhverfis- orku og loftslagsráðherra um orkumál á Vestfjörðum kynnir tillögur um lausnir í orkumálum á Vestfjörðum. Á fundinum verður farið yfir virkjanakosti á Vestfjörðum, flutning og dreifingu raforku og framtíðarspár um orkunotkun svæðisins.

Dagskrá:

Móttaka og skráning byrjar kl 10:00 og formleg dagskrá kl 10:30 með ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis- orku og loftslagsráðherra

Vestfirðir – fullir af orku
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga

Skýrsla starfshóps um orkumál á Vestfjörðum
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, formaður starfshóps um orkumál á Vestfjörðum

Orkuþörf og orkuskipti
Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma

Innlegg orkumálastjóra
Halla Hrund Logadóttir

Hádegishlé

Framleiðsla og dreifing raforku á Vestfjörðum
Elías Jónatansson, Orkubú Vestfjarða
Ásbjörn Blöndal, Vesturverk / HS Orka
Kristinn Pétursson, Austurgil
Ríkharður Örn Ragnarsson, EM Orka

Spjallborð Orkumálastjóra

Fundurinn er öllum opin meðan húsrúm leyfir og verður jafnframt streymt og upptöku miðlað á vef Vestfjarðastofu eftir fundinn.

Skráning fer fram hér