Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Nátt­úru­stofa Vest­fjarða leitar að nátt­úru­fræð­ingi

Nátt­úru­stofa Vest­fjarða óskar eftir að ráða nátt­úru­fræðing til starfa í fullt starf. Um er að ræða starf sem fer fram bæði utan­dyra í vett­vangs­rann­sóknum og á skrif­stofu við úrvinnslu gagna og skýrslu­skrif.


Skrifað: 16. apríl 2021

Starfsauglýsingar

Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika áframhaldandi ráðningu. Náttúrustofa Vestfjarða er staðsett á þremur stöðum; í Bolungarvík, á Hólmavík og á Patreksfirði en starfið er ekki bundið við ákveðna starfstöð. Á Náttúrustofunni vinna sjö starfsmenn og hefur stofan sérhæft sig í fiskeldisrannsóknum og rannsóknum tengdum mati á umhverfisáhrifum og fornleifarannsóknum. Þar sem litla stofnun er að ræða þarf viðkomandi að geta sinnt fjölbreytilegum verkefnum og vera sveigjanlegur.

Menntunar- og hæfiskröfur:

  • Háskólapróf í náttúrufræði
  • Framhaldsmenntun er kostur
  • Reynsla af gróðurrannsóknum er æskileg
  • Reynsla af fuglarannsóknum er kostur
  • Þekking og reynsla í styrkumsóknagerð kostur
  • Færni í greiningu og framsetningu gagna og skýrsluskrifum
  • Geta til þátttöku í vettvangsferðum fjarri heimili
  • Samviskusemi, frumkvæði og metnaður til að sýna árangur
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2021

Laun eru samkvæmt stofnanasamningi Náttúrustofu Vestfjarða og félagi íslenskra náttúrufræðinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um 20. maí 2021 eða samkvæmt samkomulagi. Umsókn um starfið með ferilskrá, meðmælum og kynningarbréfi þar sem kemur fram hvers vegna umsækjandi vill starfa á Náttúrustofu Vestfjarða og hvað hann hafi fram að færa, sendist til Sigurðar Halldórs Árnasonar forstöðumanns (sigurdur@nave.is) sem gefur einnig nánari upplýsingar.